25.9.2008 | 01:02
Vilja taka burt mannréttindi þeirra!?!?!
"Það er mín skoðun að slíka einstaklinga, eða skepnur, sé ekki hægt að kalla fólk, var haft eftir Tusk. Þess vegna þurfi ekki heldur að meðhöndla það með mannréttindi í huga."
... hvað viðbjóður er þetta?!?! Erum við komin yfir í dystópíubókmenntir hérna? Mér misbíður þetta.
Margir gera sér greinilega ekki fyrir því að þetta er veikt fólk. Engin önnur tegund glæpamanna brýtur jafn oft af sér aftur eftir fangelsisvist. Þeir geta ekki endilega haft stjórn á sér og hafa jafn vel stundum það brenglaða sýn á veruleikann að þeir telja sig vera að gera börnunum greiða.
Svo já, það GÆTI hjálpað að vana þá, eins ógeðslegt og það hljómar. Og þá nota ég rök til að komast að þessari niðurstöðu.
En að taka mannréttindin af fólki, gera þau að dýrum, hver sem þau eru!, fer gegn öllu sem Vestrænt samfélag byggist á! Eins gott að þetta verði ekki gert. A.m.k. ekki af sömu ástæðu og Donald Tusk vill að þetta sé gert.
![]() |
Vill láta vana barnaníðinga |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (12)
13.9.2008 | 22:11
LANG vanmetnasta starfið hér á landi...
Mér finnst hræðilegt hvernig fólk talar um lögregluna á Íslandi. Hef (mun) oftar en einu sinni heyrt "við værum betur sett án þeirra" sagt á þessu ári og mig hryllir við heimskunni. Þeir (alltof, alltof mörgu) sem hafa lent í ofbeldi hér á landi þekkja hvað það er hræðileg tilfinning. Hún er nokkurn vegin vinna þeirra, og hvað fá þeir í staðinn? Óvirðingu, dónaskap og hótanir.
Ömurlegt.
![]() |
Ég skal drepa konuna þína! |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
5.8.2008 | 17:38
... yay
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
- The dead swans lay in the stagnant pool.
- They lay. They rotted. They turned
- Around occasionally.
- Bits of flesh dropped off them from
- Time to time.
- And sank into the pool's mire.
- They also smelt a great deal.
![]() |
Verstu ljóð í heimi á uppboði |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (3)
9.5.2008 | 14:15
Nasismi á Íslandi...
Mig langar til að þetta sé grín. Ég man þegar maður hafði ekki hugmynd um að Íslendingar væru svona litlir og heimskir.
![]() |
60% nemenda segja nýbúa of marga |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (14)
30.4.2008 | 13:05
Öll frelsissvipting á málum sem koma öðrum ekkert við er "leim"
![]() |
Konur mega bera brjóstin í Kaupmannahöfn |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
27.2.2008 | 22:30
Ég er farinn að hafa litla trú á mannkyninu...
Ég var að lesa grein í mogganum, held ég, þar sem var verið að tala um myrkann boðskap í myndum nú til dags, þar sem hetjur eru sjaldséðar og álit persónanna á fólki og framtíðinni er neikvætt.
Við færumst lengra og lengra í tímann en fordómar og grimmd aukast bara og aukast. Ég hef nokkurn vegin tapað voninni að fólk muni nokkurn tíman komast til vita sinna... þó var samkynhneigð þó almennt samþykkt í Japan á miðöldum ef ég man rétt svo maður veit aldrei hvort fordómarnir ná að lagast... en það mun líklega aldrei endast ef svo kemur.
Það hljómar kannski grimmt en ég hefði ekkert á móti því að heimskasta og röklausasta fólki heimsins væri hreint bannað að fjölga sér í einhverja áratugi. Hversu oft sér maður svo sem gáfaða (þá er ég ekki að tala um fróða) rasista og... ÞETTA *bendir á fréttina*.
Ég ætla að enda þetta á tilvitnun í eina NÝLEGA MYND:
"There are times when I look at people and I see nothing worth liking." - There Will Be Blood
![]() |
Misþyrmdu fatlaðri stúlku í 6 klukkustundir |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
19.2.2008 | 15:50
Bandaríkin gáfu m.a. mannréttindi upp sem eina af ástæðunum fyrir árásinni á Írak...
... á meðan ekkert var gert við nágrannaríki þeirra, Sádí-Arabíu.
Og einungis um 10% meðlima Al-Quaida eiga sér setur þar.
Olía, much?
![]() |
Sádi-arabísk kona bíður aftöku fyrir galdra |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)